PERUGRAUTUR
- Halldóra Björg Haraldsdóttir
- Mar 19, 2018
- 1 min read
INNIHALD
½ dl chiafræ
½ dl haframjöl eða tröllahafrar
3 dl mjólk að eigin vali (t.d. hafra, möndlu eða kókos)
¼ tsk vanilla (dropar eða duft)
1 msk kakóduft
1 ½ msk hnetusmjör, gróft
2 smátt saxaðar döðlur
1-2 pera skorin í bita

AÐFERÐ:
Setjið allt hráefnið nema perubitana í skál eða krukku og hrærið vel saman, látið annað hvort standa í kæli yfir nótt, eða bara í u.þ.b. 10 mínútur og hrærið aðeins með gaffli af og til.
Ef þið eigið hrærivél er mjög þægilegt að setja allt (nema peruna) í hrærivél og láta ganga í allt að 20 mín, þetta gefur góða áferð.
Bætið svo ferskum perubitunum útá og njótið! Grauturinn geymist í lokuðu íláti í kæli í 2-3 daga, en gott er að bæta perunum ferskum út á í hvert sinn. Ef perurnar eru geymdar í grautnum fá þær svipaða áferð og niðursoðnar perur, sem sumum finnst gott, en það styttir aðeins geymsluþolið.
Uppskrift: www.himneskt.is
Comments