top of page

Pastasalat

  • Writer: Halldóra Björg Haraldsdóttir
    Halldóra Björg Haraldsdóttir
  • Mar 13, 2018
  • 1 min read

Innihald

1/2-1 krukka af grænu pestói frá Himneskt.

1 dós svartbaunir, sigtaðar og skolaðar. 2 gular eða appelsínugular paprikur skornar smátt. 5 niðurskornir vorlaukar.

5-10 bitar af sólþurrkuðum tómötum, niðurskornir. grænar steinlausar ólífur skornar í tvennt. 200 gr ósoðnar pastaskrúfur. 1 box af flúðasveppum, steiktir í vatni og kryddaðir með ítalskri kryddblöndu (oregano, basil, timian, rósmarin) eða eftir smekk. Salt og pipar eftir smekk.




Aðferð

  1. Skerið sveppina í sneiðar og steikið í vatni á pönnu. Kryddið sveppina eftir smekk.

  2. Sjóðið pastaskrúfurnar og sigtið.

  3. Blandið öllu saman. Fyrst pastanu og pestóinu.

  4. Berið fram með fersku salati, og/eða niðurskornu snittubrauði og rauðu pestói.

  5. Saltið og piprið ef ykkur finnst þurfa.

  6. Njótið!

Uppskrift: https://vegandora.com

Comentários


GERAST ÁSRIFANDI

bottom of page