Rosagóð Grænmetissúpa
- Halldóra Björg Haraldsdóttir
- Mar 19, 2018
- 1 min read
INNIHALD:
400gr Gulrætur
200gr kartöflur (má skipta út fyrir sætar)
1 laukur
2-3 sellerístönglar
Blaðlaukur
300gr Rauð paprika
35g af grænmetiskraft (ég nota 1x Kallø franskur lauk tening og 2x Kallø grænmetis tening, en hægt að skipta út fyrir svipað magn af öðrum vegan grænmetiskraft)
4 dL Plöntumjólk, (ég nota ýmist bláa soyamjólk frá Provamel eða kókosmjólk úr dós).
Matarolía
Ferskt kóríander (bætt út í þegar borin fram, ekki fyrr).
Pipar/Salt
Saxaður hvítlaukur (c.a. 20gr)
Saxað engifer (c.a. 20gr)
AÐFERÐ:

Skera papriku í sneiðar og baka í ofninum þannig að þær grillist.
Steikja laukinn, engiferið og hvítlaukinn upp úr matarolíu (má sleppa olíu og nota vatn til steikingar).
Skera kartöflur og gulrætur í bita og setja pottinn með lauknum og sjóða ásamt grænmetiskraftinum. Það þarf ekki að vanda sig við skurðinn, þetta verður maukað síðar, sjóðið án loks svo megnið af vatninu nái að gufa upp.
Þegar grænmetið er orðið mjúkt er plöntumjólkinni bætt út í ásamt grilluðu paprikunni, allt saman er blandað í blandara eða matvinnsluvél, plöntumjólkin kælir aðeins svo tækið þolir það betur. Ég set súpuna svo oftast aftur á helluna maukaða og hita aðeins meira svo plöntumjólkin njóti sín betur.
Njótið!
Uppskrift: veganlifid.is
コメント