top of page

Vegan Döðlu nammi

  • Writer: Halldóra Björg Haraldsdóttir
    Halldóra Björg Haraldsdóttir
  • Mar 19, 2018
  • 1 min read

INNIHALD:

  • 250g ferskar döðlur

  • 130g vegan smjör (ég nota Earh balane organic úr Gló eða Nutana úr Krónunni)

  • 50g púðursykur

  • Poppuð hrísgrjón (athugið að ekki allt Rice Crispies er vegan en hægt er að fá í Nettó án D-vítamíns sem er vegan)

  • 250g suðusúkkulaði

  • Smá klumpur af kakósmjöri (má sleppa).

AÐFERÐ:


  1. Ég sker döðlurnar frekar smátt (fjarlægi steina ef eru) og bræði saman í pott með vegan smjörinu, skelli svo púðursykrinum út þar til þetta er orðið klístrað og karmelukennt.

  2. Blanda poppuðu hrísgrjónunum saman við og set í form, persónulega set ég bökunarpappír undir (fjölnota) og svo í ísskáp eða frysti.

  3. Bræði súkkulaðið og kakósmjörið saman, gott að byrja á kakósmjörinu því það tekur lengri tíma en súkkulaðið. Kakósmjör kemur ekki í þægilegum einingum til að vigta því er talað um ,,klump“ en það gefur smá mjólkursúkkulaði tilfinningu. Hellið blöndunni yfir þegar botnin er orðinn kaldur og aftur inn í frysti eða ísskáp.

  4. Takið út þegar súkkulaðiblandan er orðin hörð og skerið í kubba.

  5. Njótið!

Uppskrift: http://veganlifid.is

Comments


GERAST ÁSRIFANDI

bottom of page